HýsiðVerð & laustSkilmálarHafa sambandBóka núna
Hjólhýsaleiga · Ísland Árgerð 2024
Adria Adora 522 UP Persónuleg þjónusta
Adria · 2024

Adria Adora 522 UP

Adria Adora 522 UP er glæsilegt og vandað hjólhýsi, árgerð 2024, í mjög góðu ástandi. Fremst er stór U-laga setustofa með þakglugga sem breytist í rúmgott hjónarúm, og aftast sér baðherbergi með sturtu og salerni. Fullbúið eldhús, Alde vatnshitakerfi með gólfhita og sólarsella gera hýsið tilvalið fyrir íslenska sumarið.

190.000 kr. / vika

Vikuleiga, fimmtudagur til miðvikudags · lágmark 1 vika

4 svefnpláss591 cm húslengd1.700 kg heildarþyngd2024 árgerð
Sótt og skilað í Kópavogi
Kaskótryggt hjá TM
Fullbúið eldhús & baðherbergi
Sólarsella & Alde gólfhiti
Skoðaðu hýsið

Bjart, vandað og klárt í ferðina

Rúmgott innra rými með þakglugga, fullbúnu eldhúsi, hjónarúmi og sér baðherbergi með sturtu.

Sjá verð & laus tímabil
Gott að vita

Einfaldir og skýrir skilmálar

Eingöngu bundið slitlag

Ekki má fara á malarvegi eða hálendið (F-vegi). Skemmdir af slíkum akstri eru á ábyrgð leigutaka.

Engin gæludýr

Gæludýr eru ekki leyfð í hjólhýsinu.

Reykingar bannaðar

Reykingar eru bannaðar inni í hjólhýsinu.

Skilað hreinu

Leigjandi skilar hýsinu hreinu og snyrtilegu. Sé það ekki gert er 30.000 kr. þrifagjald innheimt.

Kaskótryggt hjá TM

Hýsið er kaskótryggt. Eigináhætta er 300.000 kr. Tryggingargjald (deposit) er 100.000 kr.

Afbókun

Full endurgreiðsla ef afbókað er með minnst 14 daga fyrirvara. Innan 14 daga er bókunargjald óendurgreiðanlegt.

Tilbúin í ferðina?

Bókaðu Adora 522 UP fyrir sumarið.

Skoðaðu laus tímabil í dagatalinu og bókaðu á augabragði. Hringdu í 824 6600 eða sendu póst á info@campersandcars.is ef þig vantar aðstoð.